
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Jafnframt greiðir sviðið framlög til sjálfstætt starfandi dagforeldra, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla og hefur eftirlit með starfsemi þeirra. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 20 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Útgjöld sviðsins eru u.þ.b. 68 milljarðar kr. á ári í tæplega 200 rekstrareiningum.
Verkefnastjóri alþjóðasamtarfs og styrkja
Verkefnastjóri alþjóðasamstarfs og styrkja starfar hjá Nýsköpunarmiðju menntamála (NýMið). Meginmarkmið starfsins er að auka þátttöku starfsstaða skóla- og frístundasviðs í alþjóðlegum verkefnum og efla þannig faglegt starf og nýbreytni. NýMið gegnir lykilhlutverki í innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar, „Látum draumana rætast“, og styður við stjórnendur og starfsfólk í þróun faglegra starfshátta.
Viðkomandi mun bera ábyrgð á því að halda utan um framkvæmd alþjóðlegra samstarfsverkefna, kortleggja tækifæri, leiðbeina stjórnendum við umsóknarferli og sjá til þess að alþjóðleg þekking nýtist beint í starfi með börnum og ungmennum í borginni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kortlagning og greining: Greining á alþjóðlegu samstarfi og verkefnum innan sviðsins auk þess að bera kennsl á ný tækifæri til samstarfs.
- Styrkjaöflun: Umsjón með Erasmus+ aðildarverkefnum sviðsins bæði í skólahluta og æskulýðshluta Erasmus+ auk annarra alþjóðaverkefna (s.s. Nordplus og verkefna í uppbyggingarstjóði EES).
- Ráðgjöf og stuðningur: Kynna styrktarmöguleika og alþjóðleg verkefni fyrir stjórnendum og starfsfólki SFS og aðstoða við gerð vandaðra styrkumsókna.
- Innleiðing: Ábyrgð á að stefnumótun og verkefni falli að lögum, aðalnámskrá og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
- Samstarf: Starfið felur í sér samvinnu alla starfsstaði Skóla- og frístundasviðs auk samstarfs við innlendar og erlendar stofnanir, háskóla og félagasamtök.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi (t.d. á sviði menntamála, félagsvísinda eða stjórnunar).
- Víðtæk reynsla af og þekking á alþjóðlegu samstarfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun og þróunarstarfi er skilyrði.
- Færni í gerð alþjóðlegra og innlendra styrkumsókna (t.d. Erasmus+, Nordplus).
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í miðlun upplýsinga.
- Frumkvæði, leiðtogahæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða í menntamálum.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku. Færni í einu Norðurlandamáli er kostur.
- Góð tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Spennandi og lifandi vinnustað sem leggur áherslu á nýsköpun.
- 36 stunda vinnuviku.
- Samgöngusamning, heilsustyrk, menningarkort og sundkort.
Advertisement published5. May 2026
Application deadline17. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
NorwegianOptional
DanishOptional
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Móttökuritari SÁÁ
SÁÁ

Executive Assistant
Borealis Data Center ehf.

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sumarstarf í þjónustuveri bæjarskrifstofu
Akraneskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur
VÍS

Launafulltrúi
Þjóðleikhúsið

Fræðslustjóri
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Viðskiptastjóri
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Prófdómari í bóklegum ökuprófum á höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Móttökuritari SÁÁ - sumarstarf
SÁÁ

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali