Matís
Matís
Matís

Mannauðsstjóri

Matís leitar að öflugum og fjölhæfum leiðtoga til að leiða mannauðsmál vinnustaðarins. Við leitum að aðila sem hefur stefnumótandi sýn og getu til að hrinda verkefnum í framkvæmd, byggja upp traust samstarf og styðja stjórnendur og starfsfólk í síbreytilegu og metnaðarfullu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með stefnumótun og framkvæmd mannauðsmála
  • Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks í mannauðsmálum
  • Þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
  • Viðhalda jafnlaunavottun
  • Umsjón með meistara- og háskólanemum
  • Umsjón með ráðningum, móttöku nýrra starfsmanna og starfsþróun
  • Upplýsingagjöf og greiningar um rekstur og mannauðsmál
  • Ábyrgð á þróun starfsumhverfis m.a. aðbúnaði, öryggi og líðan
  • Þátttaka í verkefna- og umbótahópum innan Matís
  • Umsjón með launasetningu ásamt miðlun upplýsinga um kjaramál
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Víðtæk reynsla af mannauðsmálum
  • Þekking á launavinnslu og kjaramálum
  • Umburðarlyndi og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Advertisement published15. May 2026
Application deadline27. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags