Billboard og Buzz
Billboard og Buzz
Billboard og Buzz

Viðskiptastjóri Billboard og Buzz

Billboard og Buzz umhverfismiðlar leita að viðskiptastjóra í söluteymi félagsins.
Við leitum að harðduglegum og metnaðarfullum einstaklingi sem tekur ábyrgð á eigin verkefnum og hefur metnað til að ná árangri bæði í starfi og einkalífi. Starfið felur í sér náið samstarf með markaðsstjórum, stjórnendum fyrirtækja og birtingaráðgjöfum og finna með þeim leiðir til að láta auglýsingamiðlana Billboard og Buzz skila sem bestum árangri í þeirra markaðsstarfi.

Ef þú brennur fyrir mannlegum samskiptum, getur komið skemmtilegum hlutum á framfæri og átt auðvelt með að leita tækifæra og lausna, þá gæti þetta starf hentað þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með núverandi viðskiptatengslum og ábyrgð á að styrkja og þroska það samband
  • Umsjón með auglýsingaáætlunum viðskiptavina
  • Öflun nýrra viðskiptatengsla
  • Útfæra góðar hugmyndir með viðskiptavinum
  • Önnur tilfallandi verkefni innan deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla í sölu og þjónustu við viðskiptavini er æskileg
  • Þekking og áhugi á íslenskum auglýsingamarkaði
  • Áhugi á umhverfisauglýsingum og markaðssetningu
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Heiðarleiki og dugnaður
  • Stundvísi og reglusemi
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í tali og riti
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Advertisement published16. January 2026
Application deadline26. January 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags