Motus
Motus
Motus

Viðskiptastjóri

Við leitum að lausnamiðuðum og árangursdrifnum einstaklingi með reynslu af sölu- og viðskiptastýringu og áhuga á öllu sem snýr að fjármálaþjónustu. Viðkomandi myndi stýra nokkrum af okkar verðmætustu viðskiptasamböndum, byggja upp ný og taka þátt í vöruþróun og betrumbótum á þjónustu- og söluferlum.

Viðskiptastjóri vinnur í öflugum hópi sem ber ábyrgð á að þróa viðskipti við stærri fyrirtæki og skapa hjá þeim aukið virði með lausnum félagsins á sviði innheimtu, kröfuþjónustu og fjártækni.

Motus er á spennandi vegferð sem miðar að því að finna nýjar leiðir til að styrkja gæði kröfustýringar, og hún haldi áfram að vera ómissandi þáttur í vexti og viðgangi fyrirtækja á landinu öllu. Hlutverk Motus er að koma fjármagni á hreyfingu á hagkvæman, nútímalegan og aðgengilegan hátt. Við beitum til þess nýjustu tækni og sérþekkingu og leitum stöðugt bestu lausna í þágu viðskiptavina og samfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðskiptastýring og þróun lykil viðskiptavina
  • Finna og greina ný sölutækifæri
  • Sala til nýrra og núverandi viðskiptavina
  • Vöruþróun og innleiðingar nýrra og núverandi viðskiptavina
  • Viðskiptaþróun í samvinnu við viðskiptavini
  • Greiningarverkefni á innri ferlum hjá viðskiptavinum
  • Samningagerð
  • Þátttaka í að betrumbæta innri þjónustu- og söluferla
  • Samvinna við vörustýringarsvið um vöruþróun og endurbætur
  • Stefnumótun og áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla í sölu- eða viðskiptastýringu
  • Reynsla af þátttöku í vöruþróun
  • Reynsla af starfi í fjármálafyrirtæki eða fjármálasviði kostur
  • Greiningahæfni og geta til að setja saman flóknar lausnir og skilja tæknilegt umhverfi fyrirtækja
  • Framúrskarandi samskipta- og söluhæfileikar
  • Metnaður, frumkvæði og drifkraftur
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Háskólanám sem nýtist í starfi
Advertisement published9. September 2025
Application deadline19. September 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags