

Viðskiptastjóri
Sýn óskar eftir að ráða kraftmikinn, framsækinn og þjónustulundaðan einstakling í stöðu viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði. Helstu verkefni snúa að því að sækja nýja viðskiptavini ásamt því að styrkja og viðhalda núverandi viðskiptasambönd. Hlutverkið felur í sér að auka sölu til núverandi viðskiptavina, kynna nýjungar í vöruframboði og greina þær þarfir sem markaðurinn kallar eftir. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í frábæru teymi. Starfið krefst leiðtogahæfileika, sjálfstæðra og faglegra vinnubragða.
Helstu verkefni:
- Greiningar á fjarskiptamarkaði
- Öflun nýrra tekna á fyrirtækjasviði
- Uppsölur til núverandi viðskiptavina
- Sækja nýja viðskiptavini
- Þjónusta við fyrirtæki
- Þarfagreiningar
- Samningagerð
- Tilboðsgerð
- Greiningar á reikningum fyrirtækja
- Viðhalda og styrkja viðskiptasambönd
Ábyrgðarsvið:
- Ábyrgð á skilgreindum hóp fyrirtækja.
- Byggja upp og efla tengsl við lykilviðskiptavini Vodafone
- Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
- Tilboðs- og samningagerð
Hæfniskröfur:
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg en ekki nauðsynleg
- Áhugi og reynsla af sölumennsku
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af markmiðasetningu og keppnisskap
- Frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, snyrtimennska og stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní n.k.
Nánari upplýsingar fást með því að senda tölvupóst á [email protected]
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar.
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Hver erum við?
Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og Já.is. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.












