Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Við leitum að dásamlegum samstarfsaðila

Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leiðbeinanda í 100% stöðu.

Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.

Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.

Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur.

Nánari upplýsingar veitir Fanney Guðmundsdóttir, skólastjóri, í netfanginu [email protected]

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Advertisement published13. May 2025
Application deadline25. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Punctual
Work environment
Professions
Job Tags