ICEWEAR
ICEWEAR
ICEWEAR

Verslunarstjóri Icewear Magasín - Akureyri

Icewear leitast eftir að ráða til starfa drífandi og metnaðarfullan verslunarstjóra í Icewear Magasín á Akueyri.

Helstu verkefni:

Störf verslunarstjóra Icewear eru fjölbreytt og spennandi. Verslunarstjóri þarf að sinna margvíslegum verkefnum í daglegum rekstri og þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og útsjónarsemi.

Starfið felst m.a. í almennum verslunarstörfum og sölumennsku, starfsmannahaldi, birgðastýringu, framsetningu í verslun, vörupöntunum, gerð vaktaplana auk tilfallandi verkefna.

Umsóknarfrestur er til 31. Júlí 2025

Frekari fyrirspurnir um starfið má senda á netfangið [email protected]

Almennt um Icewear:

Icewear er leiðandi fyrirtæki á útivistarmarkaði og á sögu að rekja allt aftur til ársins 1972.

Vörulína Icewear er stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir börn og fullorðna. Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Icewear leggur ávalt mikið upp úr góðum verðum og góðri þjónustu enda er útivist fyrir alla.

Verslanir Icewear eru í dag 32 talsins og eru staðsettar um land allt undir merkjum Icewear, Icewear Magasín, Icemart og Arctic Explorer.

"Þín útivist - Þín ánægja"

Sjá vefsíðu Icewear: www.icewear.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf verslunarstjóra eru margvísleg og miðast m.a. við að halda upp háu vöru- og þjónustustigi í verslun Icewear. Þjálfun starfsmanna er miklilvæg, halda þarf uppi góðum starfsanda og skapa skemmtilegt vinnuumhverfi. Tilfallandi verkefni koma daglega upp á og þá reynir á útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af verslunarstjórastörfum skilyrði

·         Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

·         Sölumennska og góð þjónustulund

·         Frumkvæði og metnaður í starfi

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Advertisement published26. June 2025
Application deadline31. July 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags