
66°North
Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.
Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.
Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°NORÐUR en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.
Í dag starfa um 400 manns hjá Sjóklæðagerðinni og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin tíu verslanir undir vörumerkinu 66°NORÐUR og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir þar sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð skrifstofa í Lundúnum. Í lok árs 2022 mun Sjóklæðagerðin opna nýja 66°NORÐUR verslun í Lundúnum.

Verslunarstjóri í verslun 66°Norður
66°Norður leitar að drífandi og lausnamiðuðum leiðtoga með framúrskarandi samskiptahæfni til að taka að sér hlutverk verslunarstjóra í einni af verslunum okkar.
Verslunarstjóri í verslunum 66°Norður ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar með stefnu og markmið fyrirtækisins að leiðarljósi. Eitt af megin ábyrgðarhlutverkum verslunarstjóra hjá 66°Norður er að leiða, styðja og þjálfa söluteymi verslunarinnar til að veita einstaka þjónustu við viðskiptavini.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur verslunarinnar.
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini.
- Ábyrgð á sölu-, birgða og þjónustumarkmiðum.
- Starfsmannamál, s.s. mönnun vakta og ráðningar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Reynsla af stjórnun, þjónustustarfi eða rekstri er kostur.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
- Kunátta á Microsoft Dynamics AX er kostur.
- Framúrskarandi íslensku og ensku kunnátta.
Advertisement published9. June 2025
Application deadline21. July 2025
Language skills

Required

Required
Location
Verslun 66°Norður á höfuðborgarsvæðinu
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (8)

Veitingastjóri Aktu Taktu Stekkjarbakka
Aktu Taktu

Verslunarstjóri óskast
Föt og skór ehf

Verslunarstjóri Olís
Olís ehf.

Ert þú næsti verslunarstjóri Kultur?
Kultur konur

Verslunarstjóri Name It - Barnafataverslun
BESTSELLER

Verslunarstjórar á Höfuðborgarsvæðinu
Ísbúð Huppu

Verslunarstjóri Álnabæjar - Akureyri
Álnabær

Verslunarstjóri Icewear Magasín - Akureyri
ICEWEAR