Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Verkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar

Auglýst er eftir verkstjóra í Vinnuskólann á Akranesi fyrir sumarið 2026.

Verkstjóri sér um daglegan rekstur Vinnuskólans og er tengiliður milli flokkstjóra.

Verkstjóri vinnur einnig náið með Garðyrkjustjóra.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.

Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu, þjálfun og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum. Einnig eru grundvallaratriði í vinnubrögðum kynnt og notkun verkfæra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri Vinnuskólans.
  • Koma vinnu og verkefnum af stað og hafa yfirlit yfir verkefnastöðu.
  • Halda utan um vinnutíma og skrár.
  • Vera virkur tengiliður og upplýsingafulltrúi fyrir starfsemi Vinnuskólans.
  • Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal starfsmanna Vinnuskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi þarf að vera 24 ára eða eldri.
  • Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
  • Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
  • Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
  • Einnig þarf umsækjandi að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar. 
Advertisement published19. February 2026
Application deadline19. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Ægisbraut 13, 300 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Professions
Job Tags