Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Flokkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar

Auglýst er eftir flokkstjórum í Vinnuskólann á Akranesi, fyrir sumarið 2026.

Flokkstjórar hafa umsjón með hópum unglinga, 14-17 ára, við ýmis garðyrkjustörf, fræðslu og fleiri verkefnum Vinnuskólans.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.

Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með unglingum og leiðbeina við almenn garðyrkjustörf í bæjarlandinu.
  • Skipuleggja verkaskiptingu og framkvæmd verkefna innan hóps.
  • Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal unglinga vinnuskólans.
  • Annast ýmis skapandi verkefni og fræðslu á vegum vinnuskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
  • Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
  • Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
  • Áhugi á umhverfismálum þarf að vera til staðar.
  • Einnig þarf umsækjandi að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar.
Advertisement published26. February 2026
Application deadline23. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ægisbraut 13, 300 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Suitable for
Professions
Job Tags