HS Veitur hf
HS Veitur hf
HS Veitur hf

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum

HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum.

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla ber ábyrgð á stjórnun framkvæmdaflokka, yfirumsjón með viðgerðum og daglegum rekstri, viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum í veitukerfum vatns á Suðurnesjum. Verkstjóri fer fram með gott fordæmi og er leiðandi í góðri öryggismenningu. Verkstjóri vinnur náið með svæðisstjóra að hagkvæmum og öruggum rekstri vatnsdreifikerfisins og góðri þjónustu við viðskiptavini á veitusvæðinu.

Viðkomandi þarf að hafa góða stjórnunar- og samskiptahæfileika og kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og stuðningur við starfsfólk framkvæmdaflokka
  • Tryggja öryggi á verkstað og að viðeigandi öryggisstöðlum sé fylgt
  • Skipulagning rekstrar, nýframkvæmda, viðgerða og viðhaldsverkefna
  • Aðgerðastjórn vegna bilana eða vegna framkvæmda í vatnsdreifikerfum
  • Samskipti og eftirfylgni vegna verka sem unninn eru af ytri verktökum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í pípulögnum og eða menntun í öðrum véliðngreinum
  • Reynsla af störfum við vatnsdreifikerfi er kostur
  • Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfileikar
  • Áhugi á að byggja upp og viðhalda góðri öryggismenningu
  • Þjónustulund, samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
Advertisement published7. October 2026
Application deadline20. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Brekkustígur 36, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Master craftsmanPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags