Byko
Byko
Byko

Svæðisstjóri vöruhúss

Við erum að leita að öflugum einstaklingi í stöðu svæðisstjóra vöruhúss okkar á Selhellu.

Starfið felur í sér umsjón með daglegri starfsemi vöruhúss BYKO á Selhellu, verkstjórn á því svæði, samskipti við aðrar deildir og viðskiptavini.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum að starfsfólki með:

  • Þekkingu og reynslu á sviði vörhúsastarfsemi (mikill kostur)
  • Reynslu af stjórnun (kostur)
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góða tölvukunnáttu
  • Þekking á Microsoft AX (kostur)

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegri starfsemi vöruhúss BYKO á Selhellu
  • Verkstjórn og skipulagning
  • Samskipti við aðrar deildir innan fyrirtækisins
  • Ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini
  • Tekur þátt í mótun starfseminnar og ferla

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Nánari upplýsingar veitir Bragi Jónsson, rekstrarstjóri ([email protected]).

Advertisement published28. September 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Selhella 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags