
Slippurinn Akureyri ehf
Um vinnustaðinn
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri leitar að verkstjóra til að stýra hóp starfsmanna sem sinnir fjölbreyttum verkefnum á skipasviði fyrirtækisins.
Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, taka ábyrgð og sjá til þess að verkefnin gangi vel fyrir sig. Starfið er fjölbreytt og krefst þess að viðkomandi hafi góða yfirsýn, geti forgangsraðað verkefnum og sé óhrædd/ur við að taka ákvarðanir þegar mikið er um að vera.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og dagleg stjórnun starfsmanna á verkstað
- Úthlutun verkefna og eftirfylgni með framvindu þeirra
- Samræming og stjórnun verkferla í samstarfi við aðra verkstjóra og deildir
- Að tryggja góð vinnubrögð, gæði og skilvirkni
- Að stuðla að góðum starfsanda og öflugu samstarfi
- Að tryggja að öryggisreglum og verklagi sé fylgt á vinnusvæði
- Umsjón og skipulag verkefna sem tengjast meðal annars háþrýstiþvotti, yfirborðsmeðhöndlun og málningarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Er skipulagður, úrræðagóður og með góða yfirsýn
- Hefur hæfni og áhuga á að leiða fólk
- Getur forgangsraðað og brugðist hratt við breyttum aðstæðum
- Er lausnamiðaður og sýnir frumkvæði í starfi
- Leggur áherslu á öryggi, gæði og góð vinnubrögð
- Á auðvelt með samskipti og samstarf
- Reynsla af verkstjórn er kostur og reynsla af málningarvinnu, yfirborðsmeðhöndlun og/eða háþrýstiþvotti er sérstaklega vel séð.
Advertisement published7. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Type of work
Skills
DeterminationProfessionalismProactivePositivityLeadershipHuman relationsAmbition
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Armur ehf. óskar eftir starfsfólki
Armur ehf.

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Bílamálari
Toyota

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa í Vestmannaeyjum
Samskip

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

Garðyrkjufræðingur
Garðlist ehf

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko