Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkstjóri garðyrkjufólks

Langar þig að leiða teymi sem vinnur að því að bæta og fegra borgina okkar? Starf þar sem enginn dagur er eins. Umhverfis- og skipulagssvið leitar að verkstjóra garðyrkjufólks.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að verkstjóra garðyrkjufólks til starfa á starfstöðina á Fiskislóð. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem þú færð tækifæri til að leiða teymi og hafa áhrif á umhverfið í borginni.

Verkefni verkstjóra eru fjölbreytt en má þar nefna verkstjórn og þjálfun starfsfólks, viðhald tækja, gróðursetningar, klippingar og grisjanir og að tryggja að öryggisreglum sé fylgt. Starfið er að miklu leyti unnið utandyra, við leitum því að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í fjölbreyttum aðstæðum og er tilbúinn að vinna úti í öllum veðrum.

Starfstöðin ber meðal annars ábyrgð á hirðingu trjágróðurs, viðhaldi og rekstri skrúðgarða og grasslætti í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Starfstöðin heyrir undir skrifstofu borgarlandsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Staðgengill yfirverkstjóra og leysir af í forföllum
  • Ber ábyrgð á stjórnun og stýringu verkefna og vinnuflokka í samráði við yfirverkstjóra
  • Framfylgir öryggisreglum í daglegu starfi
  • Umsjón með viðhaldi tækja og bíla
  • Samskipti við starfsfólk og aðra hagaðila svo sem vinnueftirlitið
  • Umsjón með skrúðgörðum, gróðursetningar, klippingar, grisjun o.fl.
  • Önnur tilfallandi verkefni m.a. aðstoð við ráðningu sumarstarfsmanna og samþykkt reikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Garðyrkjufræðingur frá LBHÍ eða sambærilegt.
  • Reynsla af garðyrkjustörfum og verkstjórn
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að leiða teymi.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð auk færni í notkun á algegnum hugbúnaði sem tengist skrifstofustörfum.
  • Framtakssemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Almenn ökuréttindi eru skilyrði.
  • Íslenskukunnátta B2 og enskukunnátta B2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
  • Líkamleg hæfni þar sem stór hluti starfsins krefst vettvangsvinnu við aðstæður sem geta verið erfiðar.
Advertisement published4. March 2026
Application deadline18. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.GardeningPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Landscape gardening
Work environment
Professions
Job Tags