
Verkás Brunnar
Verkás Brunnar er verktakafyrirtæki með aðsetur í Vogunum sem sinnir almennri smíðavinnu, nýsmíði og viðhaldi fasteigna. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á fagmennsku, vandvirkni og góðan frágang í öllum verkefnum.
Hjá Verkás Brunnar er lögð áhersla á gott vinnuumhverfi og sterka liðsheild þar sem gleði, virðing, traust og gott samstarf eru í fyrirrúmi.

Verkstjóri óskast – fjölbreytt verkefni
Við leitum að reynslumiklum og ábyrgum verkstjóra til að leiða og stýra teymum í almennri smíðavinnu á Suðurnesjunum og höfuðborgarsvæðinu.
Verkstjóri ber ábyrgð á daglegri verkstjórn á verkstað, skipulagningu verkefna og að tryggja framgang og framkvæmd verkefna í samræmi við teikningar, verklýsingar og gæðakröfur. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við nýsmíði, endurbætur og viðhald fasteigna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg verkstjórn og umsjón með framkvæmdum á verkstað
- Skipulagning og stýring teyma
- Eftirlit með framvindu verkefna og gæðum vinnu
- Samskipti við verkkaupa, samstarfsaðila og starfsmenn
- Tryggja réttan framgang verkefna í samræmi við verklýsingar og teikningar
- Þátttaka í almennri smíðavinnu eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í húsasmíði eða sambærileg menntun
- Reynsla af verkstjórn í byggingariðnaði
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
- Íslenskukunnátta nauðsynleg
Við bjóðum
- Fjölbreytt verkefni
- Gott vinnuumhverfi og samheldið teymi
- Niðurgreitt símtæki
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Niðurgreiddan símreikning
- Vinnubifreið
- Verkfæri
Advertisement published6. March 2026
Application deadline20. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Type of work
Skills
PlanningCarpenterProject management
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Verkstjóri veitna
Bláskógaveita

Sölumaður – Signa / Fást / Ásborg
Signa ehf

Selfoss - Vélvirki / Vélstjóri óskast í fullt starf
Mjólkursamsalan

Verkstjóri í Búnaðardeild
ÍAV

Verkstjóri á Útflutnings- og hráefnissviði óskast
Íslenska gámafélagið ehf.

Húsasmíðameistari / Smiður
Stólpi trésmiðja

Óska eftir að ráða smið eða menn með mikla reynslu
ÞÁ smíðar ehf

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Verkgarðar

Starfsmenn í framleiðslu og uppsetningar
Signa ehf

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stórum bifreiðum.
Teitur

Framkvæmdastjóri hjúkrunar og heilbrigðissviðs
Sóltún

Smiður / starfsmaður í byggingarvinnu
Verkás Brunnar