Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Verkfræðingur í Gæðasetri

Viltu taka þátt í að tryggja að tæknilausnir sem breyta lífi fólks standist hæstu gæðakröfur?

Í Gæðasetri Össurar færðu tækifæri til að vinna að nýjustu lækningatækjum, greina flókin gögn og hafa bein áhrif á vörur sem koma til með að bæta líf þúsunda notenda um heim allan. Við leitum að lausnamiðuðum og framsæknum verkfræðingi sem hefur áhuga á tækni, greiningum og samvinnu við fjölbreytt teymi innan fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining á frávikum, kvörtunum og gögnum til að styðja við stöðugar umbætur 

  • Kerfisbundin rýni á sögulegum gögnum og þróun á áhættumötum tengdum vörum 

  • Náin samvinna við þróun, framleiðslu, þjónustu og sérfræðinga víðs vegar innan Össurar

  • Skýrslugerð, miðlun niðurstaðna og framsetning á lykilgögnum til ákvarðanatöku 

  • Þátttaka í verkfræðilegum verkefnum sem stuðla að auknu öryggi og gæðum lækningatækja 

  • Stjórn og eftirfylgni með kerfum og ferlum sem tryggja gæði 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf (BSc) í verkfræði, tæknifræði, véla- eða rafmagnstengdri tækni 

  • Reynsla af gagnagreiningu (Excel, Pivot Tables, PowerBI, Python eða sambærilegt) 

  • Þekking á vélbúnaði eða rafbúnaði er kostur 

  • Þekking á gæðakröfum fyrir lækningatæki eða stöðlum (t.d. ISO 13485) er kostur 

  • Færni í skýrum samskiptum og framsetningu gagna 

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð 

  • Góð enskukunnátta 

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

Advertisement published16. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags