Advania
Advania
Advania

Vörustjóri rekstrarlausna

Rekstrarlausnir Advania leita að drífandi aðila til þess að styrkja vörustýringarteymi sitt. Um er að ræða lykilhlutverk í mótun og þróun lausna sem falla undir hýsingu og rekstur tölvukerfa, netöryggi og fjölbreytta UT þjónustuveitingu (MSP).

Markmið vörustýringar er að byggja upp skýrt og samkeppnishæft þjónustuframboð sem skapar raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og styður við sjálfbæran rekstur. Þetta er einstakt tækifæri fyrir aðila sem vill hafa áhrif á þróun upplýsingatækniþjónustu á Íslandi.

Hlutverk þitt:

  • Bera ábyrgð á hluta lausnaframboðs rekstrarlausna Advania.
  • Móta og framfylgja vörustefnu sem tekur mið af þörfum viðskiptavina og markaðstækifærum.
  • Vinna þvert á sölu, þjónustu, tækni og markað til að tryggja skýrt virði og samræmt lausnaframboð.
  • Vera talsmaður viðskiptavina og markaðar í áframhaldandi þróun lausna.
  • Skilgreina og þróa þjónustulýsingar, verðlagningu og framsetningu MSP lausna.
  • Kynna vöruframboð með skýrum og aðgengilegum hætti fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegar greinar.
  • Góð þekking af þjónustuveitingu og framboði í UT umhverfi, sérstaklega rekstrar- eða þjónustulausnum (MSP).
  • Reynsla af vörustýringu, þjónustuhönnun eða þróun lausna er mikill kostur.
  • Sterk viðskiptahugsun og hæfni til að tengja saman þarfir markaðar og tæknilegar lausnir.
  • Framúrskarandi samskipta- og framsetningarhæfni.
Advertisement published16. February 2026
Application deadline6. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags