Forsætisráðuneytið
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðuneytið

Verkefnastjóri stórfjárfestinga á sviði atvinnuþróunar

Ríkisstjórnin vinnur að nýrri atvinnustefnu sem er ætlað að stuðla að aukinni framleiðni og leggja grunn að næsta hagvaxtarskeiði Íslands. Ýmis tækifæri eru til staðar til að auka fjárfestingu í atvinnuþróun og hefja kraftmiklar framkvæmdir sem bæta munu lífskjör í landinu.

Í tengslum við ofangreind áform óskar forsætisráðuneytið eftir að ráða verkefnastjóra stórra atvinnuþróunarverkefna í tímabundið starf til loka árs 2027.

Starfið felst í að leiða þátttöku stjórnvalda í átaki með atvinnulífinu sem snýr að því að ýta undir vöxt útflutningsgreina með háa framleiðni, samræma og móta aðkomu stjórnvalda að fjárfestingaverkefnum í atvinnulífinu (t.d. í tengslum við uppbyggingu opinberra innviða) og samskipti við hagaðila.

Leitað er að drífandi og jákvæðum einstaklingi með víðtæka þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fulltrúi ríkisins gagnvart aðilum sem hafa hug á stærri atvinnuþróunarverkefnum á Íslandi og samhæfing á hugsanlegri aðkomu stjórnvalda að þeim
  • Náið samstarf við hagaðila á borð við ráðuneyti, sveitarfélög, stofnanir, orkufyrirtæki, Íslandsstofu, samtök í atvinnulífinu og verkalýðsfélög
  • Greining á stærri atvinnuþróunartækifærum og mat á leiðum fyrir stjórnvöld til að styðja við framgang þeirra
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi
  • Víðtæk þekking og reynsla úr atvinnulífinu
  • Reynsla af fjárfestingarverkefnum og samskiptum við fjárfesta og aðra haghafa
  • Afburðafærni og lipurð í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Advertisement published9. September 2025
Application deadline30. September 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Type of work
Professions
Job Tags