Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Samtök sveitarfélag og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, skammstafað SSNE, var stofnað 2020 við sameiningu Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Eyþings.
Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allar sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, frá Siglufirði í vestri að Bakkafirði í austri, að Tjörneshrepp undanskildum. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNE á Húsavík. SSNE er landshlutasamtök 12 sveitarfélaga með um 30.000 íbúa.
Verkefnastjóri farsældar á Norðurlandi eystra
Leitað er að öflugum verkefnastjóra farsældar á Norðurlandi eystra. Verkefnið er samstarf SSNE og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Um fullt starf er að ræða og er ráðið tímabundið til tveggja ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virkt samráð við sveitarfélögin á Norðurlandi eystra og alla þjónustuveitendur farsældar á svæðinu með það fyrir augum að koma á svæðisbundnu farsældarráði.
- Móta verkferla og verkáætlun fyrir verkefnið með það að markmiði að fyrir lok tímabilsins hafi svæðisbundið farsældarráð tekið til starfa og unnin hafi verið fyrsta áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna til fjögurra ára.
- Halda utan um störf svæðisbundins farsældarráðs, boða fundi þess og bera ábyrgð á frágangi og skilum á afurð þess til allra sveitarstjórna í landshlutanum.
- Hafa yfirsýn yfir þjónustu er varðar börn í hverju sveitarfélagi með kortlagningu þeirrar starfsemi er þau varðar.
- Vera tengiliður SSNE við samráðsvettvanginn Öruggara Norðurland eystra.
- Taka þátt í mótun tengslanets farsældarmála milli landshlutasamtaka sveitarfélaga.
- Vinna önnur þau verkefni sem framkvæmdastjóri SSNE felur viðkomandi og falla að tilgangi verkefnisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi í samræmi við verkefnalýsingu.
- Viðbótarnám í greinum tengdum farsældarmálum kostur.
- Starfsreynsla á sviði félags-, skóla- og/eða barnaþjónustu.
- Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
- Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Advertisement published15. September 2024
Application deadline29. September 2024
Location
Hafnarstétt 3, 640 Húsavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Velferðarsvið: Ráðgjafi við móttöku flóttafólks
Akureyri
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Sérfræðingur í úttektum á stjórnkerfistöðlum
BSI á Íslandi ehf.
Verkefnastjóri gæðamála
Vegagerðin
Verkefnastjóri - vinnuáætlanir og innri störf
PwC
Verkefnastjóri veflausna
Advania
Vörustjóri hugbúnaðarlausna á þróunarsviði
Landspítali
Verkefnastjóri þróunar- og uppbyggingar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Verkefnastjóri á verkefnastofu
Umhverfis- og skipulagssvið
Verkefnastjóri á stórnotendasviði
Johan Rönning
Erindreki
Bandalag íslenskra skáta
Vörustjóri á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun
Landspítali