Vélvirki í raforkugeira
RST Net leitar að reynslumiklum vélvirkja með brennandi áhuga á raforkukerfum og góða reynslu af stálsmíði.
Störf vélvirkja hjá RST Net eru fjölbreytt og spennandi og vinnustaðurinn í stöðugri framför og uppbyggingu. RST Net er með starfsstöð í Álfhellu 6 í Hafnarfirði þar sem er að finna spennaverkstæði, smíðaverkstæði og framleiðslu dreifispennistöðva. RST Net sérhæfir sig í afar fjölbreyttum verkefnum sem tengjast háspennubúnaði m.a. í tengivirkjum, aðveitustöðvum og virkjunum víðsvegar um land. Þessi fjölbreyttu verkefni krefja iðnaðarmenn fyrirtækisins um útsjónarsemi við vinnu sína og eykur stöðugt við starfsreynslu þeirra og kunnáttu.
Áhugasömum af öllum kynjum er bent á að sækja um hér á Alfred.is eða á www.rst.is undir Starfsumsóknir.
Uppsetning og viðhald tengivirkja, háspenna, lágspenna og stýringar.
Vinna við vélbúnað og stálsmíði.
Vinna við háspennubúnað.
Orkuskiptatengd verkefni.
Færni í mannlegum samskiptum og hópavinnu mikilvæg
Sveinspróf í vélvirkjun æskilegt
Rafsuðukunnátta kostur
Góð öryggisvitund
Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Öflugt starfsmannafélag
Góð vinnuaðstaða
Líkamsræktarstyrkur
Hleðslustöðvar fyrir starfsfólk