
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Vélvirki á vélaverkstæði
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi vélvirkja á vélaverkstæði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndar aðstöðu. Leitað er að starfskrafti í Klettagarða í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn viðhaldsvinna, s.s viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
- Framfylgja öryggis- og brunareglugerðum
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem vélvirki
- Kunnátta til að fara með bilanagreina, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur.
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
- Íþróttastyrkur.
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Advertisement published2. October 2025
Application deadline9. October 2025
Language skills

Required

Required
Location
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
Driver's licenceConscientiousPunctualIndustrial mechanics
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki í tæknideild
Myllan-Ora

Liðsfélagi í suðu
Marel

Garðaþjónusta/ Hellulagnir / Snjómokstur
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf

Sérfræðingur í skipatæknideild
Samgöngustofa

Umsjónarmaður fjarvarmaveitu á Seyðisfirði
HEF veitur ehf.

Tækjamaður hafnarsvæði
Kuldaboli

Ertu handlaginn?
GKS innréttingar

Starfsmann vantar í plötuvinnslu
Geislatækni

Suzuki mótorhjól, utanborðsmótorar og fjórhjól - Framtíðarstarf á þjónustuverkstæði Suzuki
Suzuki á Íslandi

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun