
Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík leitar að öflugum einstaklingi til að styrkja tækniteymi fyrirtækisins.
Stálvík ehf. er öflugt og vaxandi fyrirtæki með starfsstöð við í Hafnarfirði. Við sérhæfum okkur í heildarlausnum á sviði hönnunar, smíði, uppsetninga, viðhalds og viðgerða fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Verkefnin okkar eru fjölbreytt og spanna allt ferlið frá hugmynd að hönnun og útfærslu yfir í smíði, uppsetningu og afhendingu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, lausnamiðaða hugsun og vönduð vinnubrögð og tökumst reglulega á við krefjandi og spennandi verkefni þar sem reynir á bæði tæknilega þekkingu og hugvit.
Bak við Stálvík stendur öflugur hópur fagfólks með mikla reynslu og þekkingu. Við leggjum mikla áherslu á gott starfsumhverfi, sterk samskipti og að fólkið okkar hafi tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins og vinna með okkur að fjölbreyttum verkefnum frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar lausnar.
- Hönnun og útfærsla á stálvirkjum, lögnum, vélbúnaði og öðrum tæknilegum lausnum
- Tilboðsgerð, kostnaðaráætlanir og magnútreikningar
- Samskipti og samvinna við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Mælingar og vettvangsskoðanir vegna nýsmíði, breytinga og viðgerða
- Undirbúningur verkefna og stuðningur við framleiðslu og uppsetningu
- Undirbúningur verkefna og eftirfylgni með tímaáætlunum, kostnaði og framvindu verkefna
- Gerð og utan umhald tæknigagna og annarra verkefnaskjala
Starfið er fjölbreytt og umfang þess getur þróast eftir reynslu, þekkingu og styrkleikum viðkomandi.
- Háskólamenntun í vélaverkfræði, véltæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Iðnmenntun og/eða góð verkleg reynsla úr málm- eða véliðnaði er mikill kostur
- Þekking og reynsla af AutoCAD og Autodesk Inventor
- Góð tæknileg hugsun og hæfni til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með öðrum
- Frumkvæði, ábyrgð og metnaður til að skila vönduðu verki
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli, er skilyrði
Icelandic










