Akureyri
Akureyri
Akureyri

Velferðarsvið: Starfsfólk í nýjan búsetukjarna Hafnarstræti

Velferðarsvið óskar eftir starfsfólki í búsetuþjónustu í nýja búsetukjarnanum Hafnarstræti 16. Um er að ræða störf í vaktavinnu þar sem unnið er á morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í febrúar 2025 eða eftir samkomulagi.

Um ótímabundin störf er að ræða.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu þess og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu sem utan þess.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar vinnur eftir hugmyndafræði um Þjónandi leiðsögn (gentle teaching) og valdeflingu. Starfsmenn þurfa að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna eftir henni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íbúum persónulegan stuðning og aðstoða þá við að njóta menningar- tómstunda- og félagslífs.
  • Aðstoða við allar athafnir daglegs lífs.
  • Efla sjálfræði og frumkvæði og sýna stuðning og vináttu.
  • Störfin fela í sér öguð og skipulögð vinnubrögð, framkvæmd þjónustuáætlana, dagskipulag og að vinna undir handleiðslu fagmanna.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nýfengin reynsla af starfi með fötluðum er æskileg. Reynslu skal tilgreina í umsókn.
  • Gott vald á mannlegum samskiptum og áhuga á að starfa með fólki.
  • Lipurð, jákvæðni, kurteisi og trúnaður í samskiptum við notendur, samstarfsfólk og aðra er tengjast starfinu.
  • Vandvirkni, samviskusemi og þagmælska.
  • Sveigjanleiki vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Frumkvæði, samstarfshæfni, samviskusemi og sjálfstæði í starfi.
  • Áhugi á og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Þekking á hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn og Valdeflingu er kostur.
  • Almenn tölvukunnátta er skilyrði.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Gott líkamlegt og andlegt atgervi.
  • Bílpróf.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published14. November 2024
Application deadline1. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hafnarstræti 16, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags