

Vaktstjóri í sal
Viltu vera hluti af skemmtilegum vinnustað? Minigarðurinn leitar að hressum vaktstjóra í sal!
Við leitum að öflugum og jákvæðum einstakling sem hefur góða þjónustulund og getur tekið þátt í að skapa skemmtilegt andrúmsloft fyrir viðskiptavini.
Starfið felur í sér:
Umsjón með sal og stjórnun á vakt
Náin samvinna við annað starfsfólk og stjórnendur
Við leitum að einstaklingi sem er: 20 ára eða eldri hress með góða þjónustulund, vön/vanur að vinna með öðrum í teymi, Skipulagður/skipulögð og ábyrg.
Reynsla af þjónustustörfum er skilyrði
Vinnutími: Unnið er eftir 2-2-3 vaktakerfi frá kl 15:30 á virkum dögum og 12 um helgar og hentar því mjög vel með skóla
Af hverju Minigarðurinn?
Við leggjum áherslu á gleði, samvinnu og góða stemningu – bæði fyrir starfsfólk og gesti. Minigarðurinn er fyrst og fremst skemmtilegur vinnustaður þar sem allir leggjast á eitt til að skapa frábæra upplifun. Hljómar þetta spennandi? Sendu okkur umsókn og vertu með í frábæru teymi!












