Icelandia
Icelandia
Icelandia

Vaktstjóri – Flybus á Keflavíkurflugvelli

Icelandia leitar nú að öflugum vaktstjóra sem vill vera hluti af hröðu og fjölbreyttu starfsumhverfi Flybus á Keflavíkurflugvelli. Starfið felur í sér bæði þjónustu við viðskiptavini og stuðning við starfsfólk — og krefst þess að viðkomandi sé fær um að taka skjótar ákvarðanir, leysa úr krefjandi málum og viðhalda faglegum og jákvæðum tón í hvívetna.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Flybus er ein þekktasta samgönguþjónusta landsins og hefur um árabil séð ferðalöngum fyrir öruggum og þægilegum samgöngum milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala, þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina Flybus. 

  • Daglegt utanumhald og ábyrgð á framkvæmd vaktar, þar á meðal mönnun og flæði. 

  • Stuðningur og leiðbeiningar til starfsfólks á vakt. 

  • Móttaka kvartana og meðhöndlun krefjandi samskipta. 

  • Samskipti við aðra hópa og hagaðila innan Icelandia og við samstarfsaðila. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vaktstjórn eða sambærilegu hlutverki í þjónustustarfi. 

  • Góð tæknileg hæfni og vald á tölvukerfum. 

  • Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti. Íslenska er kostur en ekki krafa. 

  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð vinnubrögð. 

  • Ráða vel við álag, tekur ákvarðanir af öryggi og vera með góða yfirsýn. 

  • Þjónustulund, jákvæðni og sterk samskiptahæfni. 

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. 

  • Ábyrgðarmikið hlutverk í öflugu þjónustuteymi. 

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina. 

  • Góðan starfsanda og skemmtilegt vinnuumhverfi. 

Advertisement published15. May 2026
Application deadline15. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Optional
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags