Vínbúðin
Vínbúðin
Vínbúðin

Sauðárkrókur - verslunarstjóri

Vínbúðin óskar eftir að ráða verslunarstjóra í Vínbúðina Sauðárkróki. Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran starfsmannahóp ÁTVR. Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur og hafa vilja og getu til að takast á við margvísleg verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða búðar
  • Eftirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins
  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun

Hæfnikröfur

  • Reynsla af verslunar- og/eða verkstjórn
  • Frumkvæði, metnaður og ábyrgð í starfi
  • Gott viðmót og rík þjónustulund
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100%.
Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí nk. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].

ÁTVR rekur 49 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.


Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Advertisement published15. May 2026
Application deadline27. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Smáragrund 2A, 550 Sauðárkrókur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags