Icelandia
Icelandia
Icelandia

Hópferðabílstjóri

Hópferðabílar Icelandia leita að ábyrgum og þjónustulunduðum bílstjórum sem leggja metnað í öryggi, snyrtimennsku og góða upplifun farþega. Í starfinu felst akstur skipulagðra ferða þar sem fagmennska og samskiptahæfni skipta sköpum. Viðkomandi þarf að geta starfað í fjölbreyttu og fjörlegu umhverfi, þar sem jákvæðni og stundvísi eru lykilatriði.

Í gegnum þessa auglýsingu má sækja um fullt starf, hlutastarf eða sumarstarf. An English version of this advertisement is available by clicking "Sækja um".

Hópferðabílar Icelandia starfa undir vörumerkinu Icelandia, sem er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur og þjónusta við farþega.
  • Umsjón og umhirða bifreiða.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aukin ökuréttindi D og réttindi til aksturs í atvinnuskyni (95).
  • Reynsla af akstri hópferðabíla er æskileg.
  • Hreint sakavottorð.
  • Íslensku- og/eða enskukunnátta.
  • Geta til að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi.
  • Að vera fyrirmyndarbílstjóri; öryggis- og þjónustumiðaður með góða samskiptahæfni.
  • Snyrtimennska og stundvísi.
  • Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
  • Möguleikar á þróun í starfi.
Advertisement published28. April 2026
Application deadline28. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Driver's license (D) Heavy vehiclesPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags