

Útkeyrsla og lager
Ofar leitar að öflugum einstakling til að sinna útkeyrslu og skemmtilegum verkefnum á lagernum okkar sem er staðsettur á Köllunarklettsvegi 8. Við erum að leita að aðila sem hefur metnað til að fara fram úr væntingum viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Útkeyrsla
-
Móttaka, tiltekt og afhending á vörum
-
Skráning
-
Önnur hefðbundin lagerstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Bílpróf
-
Jákvæðni og framúrskarandi þjónustulund
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
-
Góð tölvufærni
-
Lyftarapróf er kostur
-
Meirapróf er kostur
-
Reynsla af útkeyrslu og lagerstörfum æskileg
Vinnutími er frá kl. 08:00-17:00 alla virka daga. Óskum eftir aðila sem getur byrjað sem fyrst.
Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.













