

Umsjónarkennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Við leitum að liðsmanni í öflugan hóp kennara á miðstigi skólans. Við leitum að kennara sem er tilbúinn að koma í ný verkefni, samvinnu með samstarfsfólki og leiða skemmtilegan hóp nemenda.
Víðistaðaskóli er heildstæður skóli með 510 nemendur. Leiðarljós skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu á miðstigi
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi
Starfshlutfall er 100% og ráðið er frá 1. ágúst 2026.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected].
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er frá 25. mars til og með 8. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic



















































