Umjónarmaður fasteigna, öryggismála og viðgerða á kjarnasvið
Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns fasteigna, öryggismála og viðgerða á kjarnasviðið safneignar hjá Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér ábyrgð og daglega umsjón með varðveislu- og safnahúsnæði safnsins, viðhaldi og rekstri öryggiskerfa ásamt eftirliti og umsjón með viðhaldi í húsasafni. Leitað er að vandvirkum, vinnusömum, þjónustulunduðum og úrræðagóðum einstaklingi með góða þekkingu á viðhaldi. Aðalstarfsstöðvar viðkomandi starfsmanns eru á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði og í Vesturvör í Kópavogi.
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um menningarminjar nr. 80/2012.
- Dagleg umsjón og eftirlit með varðveislu- og safnahúsnæði
- Dagleg umsjón með viðhaldi og samskiptum við þjónustuaðila og iðnaðarmenn
- Gerð viðhaldsáætlana
- Innkaup og öflun tilboða
- Umsjón með lóðum og sorphirðumálum
- Eftirlit með viðgerðum og viðhaldi í húsasafni
- Minniháttar viðhald
- Tekur þátt í uppsetningu og niðurtöku sýninga
- Tekur þátt í ýmsum verkefnum tengdum safnkosti
- Er fulltrúi safnsins í öryggisnefnd og tekur þátt í öryggisþjálfun starfsfólks
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Verklagni, vinnusemi, nákvæmni, frumkvæði og vönduð vinnubrögð
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og þekking á byggingararfinum er kostur
- Eiga auðvelt með að vinna í hópi og einn
- Almenn góð tölvukunnátta
- Líkamlegt hreysti og snyrtimennska
- Rík þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð og dugnaður eru skilyrði
- Íþróttastyrkur
- Full stytting vinnuviku