Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Aðstoðarskólastjóri

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar leitar að metnaðarfullum, framsýnum og drífandi einstaklingi í starf aðstoðarskólastjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á tónlistarmenntun, býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og hefur vilja til að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun öflugs og fjölbreytts skólastarfs.

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er lifandi og metnaðarfullur skóli þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, skapandi starf og jákvætt námsumhverfi. Aðalstöðvar skólans eru í Hljómahöll, en jafnframt starfar skólinn í grunnskólum bæjarins þar sem kennsla forskóladeildar og hljóðfærakennsla fyrir nemendur í 3.–7. bekk fer fram.

Við skólann stunda um 900 nemendur nám, að forskóla meðtöldum, og þar starfa um 50 kennarar við fjölbreytta og öfluga tónlistarkennslu.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfar náið með skólastjóra að daglegri stjórnun og þróun skólastarfsins og gegnir hlutverki hans eftir þörfum.
  • Tekur þátt í stjórnendastarfi skólans og situr stjórnendafundi.
  • Ber ábyrgð á afmörkuðum þáttum starfseminnar með sérstakri áherslu á innra starf, skipulag og daglega starfsemi skólans.
  • Styður við faglegt starf kennara og fylgist með skipulagi náms og kennslu í samstarfi við skólastjóra.
  • Tekur virkan þátt í þróun og umbótastarfi með það að markmiði að efla skólastarfið og bæta þjónustu við nemendur.
  • Veitir skólastjóra ráðgjöf í starfsmannamálum og tekur þátt í ráðningarferlum eftir því sem við á.
  • Er tengiliður við samstarfsaðila og opinberar stofnanir.
  • Hefur umsjón með nemenda- og verkefnaskráningu í gagnagrunni skólans.
  • Vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki að úrlausn verkefna og mála sem upp kunna að koma í daglegu starfi.
  • Sinnir öðrum tilfallandi verkefnum samkvæmt ákvörðun skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarmenntun á háskólastigi (kennari III).
  • Kennslureynsla, þekking og innsýn í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarmenntunar er æskileg.
  • Stjórnunarreynsla og/eða reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
  • Mjög góð tölvu- og upplýsingatæknikunnátta.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu viðmóti og þjónustulund.
  • Hæfni til að leiða samstarf, hvetja aðra og byggja upp jákvæð og árangursrík teymissamskipti.
  • Frumkvæði, fagmennska og metnaður í starfi.
  • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Hlunnindi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published27. May 2026
Application deadline9. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags