Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Tónlistarkennarar óskast

TónlistarskóliFjarðabyggðar ósakr eftir að ráða tvo píanókennara. Einn í fulla stöðu og annan í 50% stöðu píanókennara auk 50% stöðu sem tónmenntakennari við Nesskóla í Neskaupstað.

Í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar eru tæplega300 nemendur og eru flestir á grunnskólaaldri. Kennsla fer fram á skólatíma grunnskóla að mestu leyti og eru tónlistarkennslustofur í sama húsnæði og grunnskólarnir. Mjög gott samstarf er við grunn- og leikskóla. Alls eru sex starfsstöðvar í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar og kennarar við skólann geta þurft að kenna á mismunandi starfsstöðvum.

Mikið og gott samstarf er milli kennara og skólinn starfar eftir hugmyndafræði lærdómssamfélagsins.

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla nemenda í samræmi við þarfir þeirra og samkvæmt aðalnámskrá og skólanámskrá.
  • Undirbúningur nemenda fyrir próf, tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
  • Skipulag og utanumhald á kennslu eigin nemenda.
  • Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarkennaramenntun, tónmenntakennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published6. June 2025
Application deadline20. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags