
Tónlistarskólinn á Akranesi
Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi er að stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska. Tónlistarskólinn á Akranesi býr við góðan aðbúnað til kennslu að Dalbraut 1 og býður upp á fjölbreytileika í skólastarfinu.
Fjölhæfur tónlistarkennari
Tónlistarskólinn á Akranesi auglýsir eftir tónlistarkennara í 30-60% starf. Stærð stöðunnar veltur á hæfni umsækjanda. Mögulegt er einnig að sameina stöðuna við aðrar auglýstar stöður hjá skólanum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst fyrst og fremst í kennslu í forskóla fyrir nemendur sem eru í 1. og 2. bekk auk tónfræðikennslu, en einnig mögulegri hljóðfæra/söngkennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun:
- Háskólamenntun eða sambærileg menntun í tónlist
Hæfni:
- Faglegur metnaður, reynsla og áhugi á að starfa sem tónlistarkennari
- Áhugi á starfsþróun og fjölbreytni í skólastarfi
- Virðing og lipurð í mannlegum samskiptum við nemendur, forráðafólk og samstarfsfólk
- Háttvísi og stundvísi
- Krafist er hreins sakarvottorðs
Advertisement published6. June 2025
Application deadline20. June 2025
Language skills

Required
Location
Dalbraut 1, 300 Akranes
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsAmbition
Professions
Job Tags