Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Sérkennari fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál

Nesskóli í Neskaupstað auglýsir eftir sérkennara fyrir nemendur með annað tungumál, ÍSAT. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst n.k.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.

Skólastarf Nesskóla miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.nesskoli.is

Neskaupstaður er í Fjarðabyggð. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá
  • Vinnur að móttökuáætlun skólans
  • Vinnur samkvæmt viðmiðun um kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál - ÍSAT
  • Ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám og kennslu
  • Aðlögun á námsefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum æskileg.
Advertisement published2. June 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags