Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Lindaskóli óskar eftir sérkennara

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 460 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og tekur þátt í innleiðingu Barnasáttmálans. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.

Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf sem kennari

·         Nám í sérkennslufræðum er kostur

·         Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Góð hæfni í samskiptum

·         Stundvísi og samviskusemi

Advertisement published4. June 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags