Leikskólinn Stakkaborg
Leikskólinn Stakkaborg
Leikskólinn Stakkaborg

Þroskaþjálfi, atferlisfræðingur eða sálfræðimenntaður aðili

Þroskaþjálfi/atferlisfræðingur eða aðili með sálfræðimenntun óskast til starfa í leikskólanum Stakkaborg. Leikskólinn er staðsettur í Bólstaðahlíð 38 er 5 deilda leikskóli. Stakkaborg er rótgróinn skóli miðsvæðis í Reykjavík.

Í daglegu starfi er lögð áhersla á flæði og frjálsan leik. Starfið er laust frá ágúst 2025. Í starfinu felst að fylgja eftir börnum með sérþarfir í daglegum athöfnum, veita þjálfun og stuðning við börn inni á deildum. Þekking á Pecs og TMT er mikill kostur. Starfsmaður er partur af sérkennsluteymi leikskólans sem sinnir öllum börnum með sérþarfir innan leikskólans undir handleiðslu sérkennslustjóra. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi en enginn dagur er eins í leikskólastarfinu. Við erum með flottan starfsmannahóp sem vinnur saman með virðingu, jákvæðni og samvinnu að leiðarljósi. Hér er gott að starfa og viljum við að starfsmenn séu virkir þátttakendur í starfi og stefnu leikskólans.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir. 
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og örðum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í leikskólakennarafræði, þroskaþjálfun eða menntun í atferlisfræði/sálfræði er kostur.
  • Reynsla af sékennslu æskileg.
  • Þekking á Pecs og Tákn með tali.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiputum. 
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi. 
  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði. 
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Frír hádegismatur.
  • Heilsustyrkur.
  • Menningarkort
Advertisement published1. June 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Bólstaðarhlíð 38, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags