

Þrymur hf Vélsmiðja : Vélaviðgerðir og þjónusta.
Þrymur hf Vélsmiðja : Vélaviðgerðir og þjónusta
Vélsmiðjan Þrymur hf á Ísafirði leitar að drífandi einstaklingum til starfa við viðgerðir og þjónustu á starfsstöð okkar á Ísafirði. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu hjá viðskiptavinum okkar á Vestfjörðum.
Helstu viðfangsefni okkar eru þjónusta á vélbúnaði tengdum sjávarútvegi og öðrum iðnaði. Starfið krefst góðra samskipta við viðskiptavini og færni til að vinna í hóp. Í boði eru krefjandi störf í skemmtilegu vinnuumhverfi. Þrymur fjárfesti nýlega í skipalyftu sem mun verða tekinn í notkun fyrir vorið 2026. Lyftan mun gjörbreyta aðstöðu fyrirtækisins í skipaþjónustu. Einnig er í undirbúninga að hanna nýja lóð sem fyrirtækið verður með fyrir framtíðarstarfsemina á Ísafirði.
Ófaglærðir aðilar með mikla reynsla í sambærilegum vélaviðgerðum geta líka sótt um starfið.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 15.september.
Almennar upplýsingar um starfið veitir Högni Gunnar Pétursson hö[email protected]
Sótt er um á Alfred.is, einnig má senda umsóknir með ferilskrá beint á Jakob Ólaf Tryggvason [email protected]
Þrymur HF Suðurgata 9 400 Ísafjörður . Sími 456-3711.
Viðgerðir og almennt viðhald á vélum og tengdum búnaði á starfsstöð á Ísafirði.
Viðhaldsverkefni á vélum og tækjum á Vestfjörðum.
Þjónustueftirlit í fyrirtækjum og bátum.
Við leitum eftir einstaklingum sem:
Hafa sveinspróf í vélvirkjun, bifreiðavirkjun eða sambærilegri menntun.
Eru stundvísir og samviskusamir.
Geta unnið í teymi og eiga auðvelt með samskipti.
Hafa almenn ökuréttindi.
Hafa góða kunnátta í íslensku og/eða ensku.













