Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag er sjálfseignarstofnun með þjónustu við fatlað fólk og hefur í gegnum árin komið á fót umfangsmiklum rekstri. Þá hefur félagið notið velvilja og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki átt drjúgan þátt í að styðja félagið til vaxtar.
Í dag veitir Ás styrktarfélag hátt á fjórða hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og vinnu. Starfsmenn félagsins eru rúmlega 440 í tæplega 300 stöðugildum.
Félagið veitir fólki með fötlun fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu. Félagið hefur að geyma framsækinn starfsmannahóp og góðan starfsanda sem skilar sér í faglegu og áhugaverðu starfi.
Þroskaþjálfi/stuðningsfulltrúi með háskólamenntun í búsetu
Ás styrktarfélag óskar eftir þroskaþjálfa eða starfsmann (með háskólamenntun sem nýtist í starfi) í vaktavinnu á heimili á Lautarvegi. Sex íbúðir eru í húsinu auk starfsmannaaðstöðu.
Starfshlutfallið er 30-100 %, allar tegundir vakta koma til greina og eru karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um vegna samsetningar starfsmannahópsins sem fyrir er.
Staðan er laus eftir samkomulagi.
Um tímabundið starf er að ræða, út ágúst 2025 með möguleika á áframhaldi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á fagleglegu starfi, miðlar þekkingu til annara starfsmanna og veitir þeim stuðning.
- Aðstoðar íbúa til sjálfshjálpar og stuðlar að þátttöku þeirra í samfélaginu
- Aðstoðar og styður íbúa við athafnir daglegs lífs og við heimilishald
- Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa
- Fylgist með andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoðar þá við heilsufarslega þætti
- Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa.
- Tryggir að sjálfsákvörðunarréttur íbúa sé virtur og að veitt sé einstaklingsmiðuð þjónusta
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þroskaþjálfi: Menntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi
- Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmyndfræði.
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð. Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að skila inn sakarvottorði (af island.is) ef af ráðningu verður. Stjórnandi biður um þau gögn fyrir atvinnuviðtal.
Advertisement published9. December 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
Icelandic
IntermediateRequired
Location
Lautarvegur 18, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactivePositivityIndependenceDevelopmental counselor
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Starfsfólk við aðhlynningu aldraðra
Seltjörn hjúkrunarheimili
Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja
Kringlumýri frístundamiðstöð
Ráðgjafi í málaflokki fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ævintýraborg við Eggertsgötu
Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir
Starfsmaður í fylgd fatlaðra í akstursþjónustu
Sveitarfélagið Árborg
Klettaborg -leikskólasérkennari, þroskaþjálfi, eikskólakenna
Leikskólinn Klettaborg
Sérkennsla í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg
Spennandi starf stuðningsfulltrúa í búsetukjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Garðabær leitar að starfsfólki í stuðningsþjónustu
Garðabær
Verkefnastjórar í einstaklingsstuðningi (félagsleg liðveisla
Akureyri
Kvíslarskóli - sérkennari
Kvíslarskóli