

Þjónustufulltrúi - Reykjavík
Ertu þjónustulipur og jákvæður einstaklingur sem er tilbúinn í spennandi framtíðarstarf?
Við hjá Bílaleigu Akureyrar erum að leita að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábært teymi okkar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í þjónustu og afgreiðslu þar sem enginn dagur er eins. Tilvalið starf fyrir þá sem elska að vinna með fólki og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu.
Vinnutími er kl. 8:00-17:00 virka daga og ein helgi í mánuði eða 2-2-3 vaktafyrirkomulag.
- Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
- Útleiga og móttaka á bílum
- Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Ferjanir á bílum
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf, réttindi á beinskipta bíla skilyrði
Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota. Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.













