Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Þjónustufulltrúi á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa á bæjarskrifstofunni á Reyðarfirði. Þjónustufulltrúi gegnir mikilvægu hlutverki við að veita íbúum góða og skilvirka þjónustu.

Viltu starfa með samheldnum hópi og leggja þitt af mörkum til þjónustu við íbúa Fjarðabyggðar? Í starfinu er lögð rík áhersla á teymisvinnu og samstarf þvert á svið sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Miðlæg þjónusta fyrir bæjarskrifstofur og stofnanir.
  • Móttaka viðskiptavina og gesta.
  • Móttaka ábendinga, pósts og flokkun erinda og skráning.
  • Skráning mála í skjalakerfi og frágangur mála.
  • Stoðþjónusta innan bæjarskrifstofu.
  • Aðstoð við undirbúning funda og viðburða.
  • Innkaup rekstrarvara og umsjón hans.
  • Aðstoðar við skipulag mötuneytis.
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Menntun sem nýtist í starfinu er áskilin.
    • Reynsla af notkun ritvinnslu- og upplýsingatæknikerfa er mikilvæg.
    • Reynsla af þjónustu- og almennum skrifstofustörfum er mikilvæg.
    • Góð íslenskukunnátta og íslensk ritfærni.
    • Önnur tungumálakunnátta er kostur.
    • Hæfni í mannlegum samskiptum.
    • Gott viðmót og þjónustulund er mikilvæg.
    • Samstarfs- og samskiptahæfileikar.
    • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
    Advertisement published25. September 2026
    Application deadline18. October 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Advanced
    EnglishEnglish
    Required
    Intermediate
    Location
    Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
    Type of work
    Work environment
    Professions
    Job Tags