
Lyfjafræðingafélag Íslands

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands (LFÍ) leitar að öflugum skrifstofustjóra í 9 mánaða afleysingu vegna fæðingarorlofs. LFÍ er fag- og stéttarfélag lyfjafræðinga á Íslandi. Félagið vinnur að því að efla faglega stöðu lyfjafræðinga, gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi félagsmanna með bættum kjörum og aukinni starfsánægju. Félagið rekur skrifstofu í Lyfjafræðisafninu á Seltjarnanesi og annast fjölbreytt verkefni fyrir félagsmenn, meðal annars fræðslu, félagsstarf og rekstur orlofshúsa og sjóða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skrifstofustjóri sér um rekstur skrifstofu LFÍ og heildarskipulag félagsstarfsins. Meðal verkefna eru:
- Daglegur rekstur skrifstofu, greiðsla reikninga, útgáfa reikninga og kröfur í DK
- Utanumhald og umsýsla umsókna sjúkra-, starfsmenntunar- og fræðslusjóðs
- Móttaka erinda símleiðis og svörun tölvupósta
- Umsjón orlofshúsa og orlofsvefs
- Umsjón með heimasíðu, útgáfa fréttabréfs, Facebook-hópi og Instagram LFÍ
- Aðstoð við fræðslu- og félagsstarf líkt og undirbúningur fyrir dag Lyfjafræðinnar, auglýsingar og skráningu þátttakenda
- Fundarboð, dagskrárgerð, fundarsókn og eftirfylgd funda, m.a. stjórnarfunda, fræðslufunda og aðalfunda
- Undirbúningur ársskýrslu, ársreikninga, fjárhagsáætlun og kosning félagsmanna
- Umsjón félagatals og póstlista
- Ýmis verkefni tengd Lyfjafræðisafninu, samskipti við leigjendur og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði rekstrar eða skrifstofuhalds (DK)
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
- Framúrskarandi þjónustulund og sveigjanleiki í starfi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt, bera ábyrgð og halda utan um fjölbreytt verkefni
- Góð tölvukunnátta og áhugi á einföldun ferla með nýtingu tækni og aðstoð gervigreindar
- Gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
- Lausnamiðað viðhorf og metnaður í starfi
- Þekking á störfum lyfjafræðinga er kostur
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun innri ferla og skipulag
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni
- Aðgangur að félagslegum viðburðum og fræðslu
- Samkeppnishæf laun
Advertisement published30. September 2026
Application deadline15. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishOptional
Location
Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
CanvaDKDriveEmail marketingFacebookPlanningQuick learnerProactiveClean criminal recordCreativityInstagramPositivityHuman relationsAmbitionBillingNon smokerPhone communicationEmail communicationConscientiousIndependencePlanningNeatnessMeticulousnessCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Þjónustufulltrúi á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

VR á Egilsstöðum
VR

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel