

Þjónusta í apóteki - Apótekarinn Hveragerði
Apótekarinn Hveragerði leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til þess að sinna þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini fyrirtækisins. Um framtíðarstarf er að ræða.
Vinnutími er alla virka daga kl 10-18.
Starfssvið:
-Ráðgjöf til viðskiptavina
-Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í apóteki er kostur
- Lyfjatæknimentun er mikill kostur
- Söluhæfileikar
- Mikil þjónustulund og jákvæðni
- Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
- Lágmarksaldur er 20 ára
Starfið er laust frá 1. apríl eða fyrr.
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.
Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.












