Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í sértækri búsetu - leiðtogahlutverk sem skiptir máli

Ertu faglega sterkur einstaklingur sem hefur brennandi áhuga á að leiða öflugt teymi og taka þátt í að skapa þjónustu sem styður fatlað fólk til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs?

Við leitum að metnaðarfullum og faglegum teymisstjóra til íbúðakjarna fyrir fatlað fólk að Vættaborgum 82. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, valdeflandi stuðning, þjónandi leiðsögn og einstaklingsmiðaða þjónustu.

Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í að leiða starfsfólk, styðja íbúa og þróa þjónustuna í samstarfi við forstöðumann. Starf teymisstjóra felur í sér bæði stjórnun og faglega forystu sem ásamt því að vinna að hluta til á vöktum í beinni þjónustu við íbúa.

Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og samræma daglegt starf teymis í samstarfi við forstöðumann.
  • Skipuleggja framkvæmd þjónustu og hafa yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa.
  • Styðja íbúa til sjálfstæðs lífs og aukinnar samfélagsþátttöku.
  • Ber ábyrgð á gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
  • Veita starfsfólki ráðgjöf, leiðsögn og stuðning í starfi.
  • Samræma vinnubrögð og stuðla að faglegri þróun og umbótastarfi.
  • Stýra samstarfi við íbúa, aðstandendur, fagaðila og aðra þjónustuaðila.
  • Taka þátt í stjórnunarteymi starfsstaðar.
  • Sinna beinni þjónustu við íbúa samkvæmt skipulagi starfsstaðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Reynsla af leiðtogahlutverki eða stjórnun er kostur.
  • Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, mannréttindum og valdeflandi þjónustu.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta – C1 eða C2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
  • Heilsu- og samgöngustyrkur
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Advertisement published11. November 2026
Application deadline24. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Vættaborgir 82, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags