

Tækniteiknun - skráning og úrvinnsla gagna
Geoform leitar að jákvæðum og framtakssömum starfsmanni í stöðu tækniteiknara hjá tæknilega sinnuðu og framtíðarþenkjandi fyrirtæki í mikilli sókn. Geoform starfar á sviði upplýsingatækni, gagnaöflunar og úrvinnslu gagna. Fyrirtækið sinnir fjölbreyttri tækniráðgjöf og þjónustu á sviði landupplýsinga fyrir sveitarfélög, veitufyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Sem tækniteiknari, munt þú sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði tækniteiknunar, skráningar, úrvinnslu og innfærslu gagna t.d. á sviði rafveitu, götulýsingar, hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu, landskipta ásamt ýmsum öðrum fjölbreyttum og tilfallandi verkefnum.
Þú munt vinna með fagaðilum bæði innanhúss sem utan í jákvæðu og metnaðarfullu umhverfi. Starfsstöðvar eru á höfuðborgarsvæðinu og möguleiki á að vinna að hluta í fjarvinnu eða eftir samkomulagi.
Hafir þú áhuga á að móta framtíðina með okkur á sviði, landupplýsinga (GIS), hönnunar, tækniteiknunar, innfærslu og upplýsingatækni þá endilega sendu okkur umsókn.
Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, framsýnn, tæknilega sinnaður, umbótaþenkjandi og þjónustulundaður.
- Tækniteiknun lagna og búnaðar
- Teikning og viðhald einlínumynda
- Innfærsla gagna í gagnagrunn
- Viðhald kortagrunns í landupplýsingakerfi
- Önnur tilfallandi verkefni
MENNTUN
- Tækniteiknun, verkfræði, landafræði eða önnur tækni- og háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Menntun tengd rafmagni er kostur.
HÆFNISKRÖFUR
- Reynsla af tækniteiknun eða sambærilegu.
- Reynsla af hugbúnaðarsvítunni AutoDesk
- Reynsla af landupplýsingahugbúnaði (ArcGIS, QGIS) eða öðrum sambærilegum hugbúnaði er mikill kostur
- Þekking eða menntun á sviði rafveitu, götuskápum, götulýsingu og raflögnum er mikill kostur.
- Reynsla af því að vinna með gagnagrunna er kostur
- Tæknilega sinnaður einstaklingur með góða tölvufærni
- Nákvæm og vönduð vinnubrögð
- Góð þjónustulund, umbótasinnaður, jákvætt hugarfar og góð samskiptahæfni.
Möguleiki á fjarvinnu að hluta eða eftir samkomulagi








