Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Sveitarstjóri Reykhólahrepps

Reykhólahreppur leitar að framsýnum og öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra til að leiða uppbyggingu, verkefni og daglegan rekstur sveitarfélagsins á kjörtímabilinu í góðu samstarfi við sveitarstjórn. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á leiðtogahæfni, frumkvæði og framúrskarandi samskiptafærni.

Helstu verkefni og ábyrgð

·        Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar

·        Daglegur rekstur sveitarfélagsins og yfirstjórn starfsmannamála

·        Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins

·        Náið samstarf með sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf

·        Hagsmunagæsla Reykhólahrepps og vera talsmaður sveitarfélagsins

·        Annast samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök

·        Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í málefnum sveitarfélagsins

·        Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs og ferðaþjónustu á svæðinu

Menntunar- og hæfniskröfur

·        Háskólamenntun sem nýtist í starfi

·        Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

·        Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi

·        Reynsla af stefnumótun, stjórnun, rekstri og fjármálum

·        Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu

·        Góð þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum

·        Reynsla af störfum á vettvangi sveitarstjórnarstigs er æskileg

·        Framúrskarandi færni í íslensku í ræðu og riti

·        Mjög góð færni í ensku í ræðu og riti

·        Mjög góð almenn tölvukunnátta skilyrði

·        Greinargóð þekking á málefnum sveitarfélagsins er kostur

Advertisement published19. June 2026
Application deadline28. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Maríutröð 5A, 380 Reykhólahreppur
Type of work
Professions
Job Tags