Launafl
Launafl

Framkvæmdastjóri

Launafl leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að taka við sem framkvæmdastjóri félagsins.

Við leitum að einstaklingi með reynslu af rekstri og stjórnun, sterka leiðtogahæfni og getu til að leiða fjölbreytta starfsemi. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og gegnir lykilhlutverki í að móta og fylgja eftir markmiðum þess í samstarfi við stjórn, starfsfólk og samstarfsaðila.

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í öflugu fyrirtæki með reynslumikið starfsfólk og góðan starfsanda. Starf framkvæmdastjóra krefst búsetu á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðir stefnumótun og þróun félagsins í samstarfi við stjórn.
  • Ábyrgð á daglegum rekstri félagsins.
  • Ábyrgð á fjárhag, áætlanagerð og eftirfylgni.
  • Ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra hagaðila.
  • Tryggir skilvirka verkferla og góða nýtingu fjármuna og annarra rekstrarauðlinda.
  • Stuðlar að öflugum starfsanda og góðu samstarfi innan fyrirtækisins. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri.
  • Góð þekking og reynsla á fjármálum og áætlanagerð.
  • Framúrskarandi leiðtoga-, samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna að fjölbreyttum verkefnum og forgangsraða þeim.
  • Góð færni í íslensku og ensku.
Advertisement published18. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Framúrskarandi
EnglishEnglish
Required
Mjög góð
Location
Hraun 3, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags