

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Fossvogi
Við óskum eftir að ráða til starfa metnaðarfullan hjúkrunarfræðing með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf, þróun og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu á þrískiptum vöktum. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Á svæfingadeild Landspítala í Fossvogi starfa um 30 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við bjóðum upp á góðan vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og þjálfun eftir þörfum hvers og eins.
Svæfingardeildir í Fossvogi og við Hringbraut horfa í auknu mæli til aukinnar samvinnu til undirbúnings þegar deildirnar verða sameinaðar í nýjum meðferðarkjarna. Liður í þessu er meðal annars samræming verkferla og skiptiprógram þar sem starfsfólk kynnist báðum deildum.
Icelandic




























































