Landspítali
Landspítali
Landspítali

Deildarstjóri á Dauðhreinsun

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á Dauðhreinsun við Tunguháls. Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun og rekstri til að leiða starfsemi Dauðhreinsunar. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað starfsfólk. Deildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri ber ábyrgð á faglegri starfsemi Dauðhreinsunar, stýrir daglegum rekstri deildarinnar, tryggir gæði og stuðlar að framþróun starfseminnar.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2026.

Dauðhreinsun verður meðal fyrstu eininga sem flytur í nýjan spítala og verður því deildin í mikilli þróun á næstu árum til undirbúnings fyrir það. Deildarstjóri er lykilaðili við að undirbúa flutning deildarinnar og því felst meðal annars að endurskipuleggja starfsemi deildarinnar, rýna ferla og tryggja gæði þjónustunnar. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans. Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til að leiða umbreytingarverkefni.

Á deildinni starfa um 17 einstaklingar í þverfaglegu teymi sem samanstendur af sérhæfðu starfsfólki, sótthreinsitæknum og hjúkrunarfræðingum. Meginverkefni deildarinnar snúa að því að raða, pakka og dauðhreinsa verkfæri sem notuð eru á skurðstofum spítalans auk þess að sjá um að pakka og dauðhreinsa verkfæri frá öðrum starfsstöðvum innan og utan spítalans. Starfsemi deildarinnar er mikilvægur hlekkur í skurðstofustarfsemi og í að tryggja öryggi sjúklinga og sýkingarvarnir á Landspítala. Góð vinnuaðstaða er á deildinni og er hún vel tækjum búin. Dauðhreinsun tilheyrir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala en þar starfa um 1200 einstaklingar í tæplega 900 stöðugildum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun á starfsemi. Setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
  • Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við forstöðufólk
  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
  • Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi
  • Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan sviðsins og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
  • Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
  • Starfsreynsla við skurðhjúkrun er kostur
  • Framhaldsmenntun í hjúkrun eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
  • Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
  • Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
  • Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
  • Hæfni til að leiða teymi
  • Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun og gæða- og öryggismál
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published4. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (50)
Landspítali
Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Landspítali
Landspítali
Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á dagdeild gigtlækninga
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar - dagvinna á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Öryggisþjónusta
Landspítali
Landspítali
Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Vöknun - vaktavinna/ næturvaktir
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðadagdeild lyflækninga
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á endurhæfingardeild Grensás
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir sérnáms, framhaldsmenntun lækna
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 3. námsári
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 2. námsári
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnun á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindabókasafni
Landspítali
Landspítali
Læknir í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna
Landspítali
Landspítali
Læknir -Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur á geislameðferðardeild
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á göngudeild augnsjúkdóma, Eiríksgötu 5
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði óskast á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Hlutastörf með námi í endurhæfingarþjónustu og/ eða sumarstörf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðalyflækningadeild og/ eða sumarstörf
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Flutningaþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Vöruhús
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Þvottahús
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Þjónustuver og móttökur
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Sumarstörf 2026 - Umönnunarstörf á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf á geislameðferðardeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Talmeinafræðingur
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir geislameðferðar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í innlagnastjórn
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í nýburalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári í geðþjónustu - hlutastörf með námi og/ eða sumarstörf
Landspítali