Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Sumarstörf í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum einstaklingum til starfa yfir sumarið í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík, með möguleika á áframhaldandi starfi. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á þrískiptum átta tíma vöktum.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er gjarnan nefnd hjartað í starfseminni. Stjórnstöðin sinnir m.a. löggæslu innan íslenskrar lögsögu, þ.m.t. landamæraeftirlit og eftirliti með fiskveiðum bæði innan íslenskrar efnahagslögsögu og á alþjóða hafsvæðum, hún er vaktstöð siglinga og síðast en ekki síst þá er stöðin björgunarstjórnstöð fyrir sjó- og loftför innan íslenska leitar- og björgunarsvæðisins. Stjórnstöðin sinnir allri neyðarsvörun fyrir Landhelgisgæsluna, boðar þyrlur, flugvél, varðskip og aðrar einingar Landhelgisgæslunnar sem og aðra viðbragsaðila í útköll, samræmir aðgerðir og sér um fjarskipti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samhæfing verkefna Landhelgisgæslu Íslands vegna leitar og björgunar, löggæslu og fiskveiðieftirlits samkvæmt skilgreindu verklagi

  • Móttaka, greining og miðlun neyðarkalla auk tilkynninga um slys eða óhöpp

  • Vöktun sjálfvirkra tilkynningarkerfa skipa

  • Fjarskiptaþjónusta við skip

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla af siglingafræði er kostur

  • Áhugi og geta til að starfa í fjölbreyttu tækniumhverfi

  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun

  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni

  • Reglusemi, snyrtimennska og stundvísi

  • Sjálfstæði, nákvæmni og agi í vinnubrögðum

  • Geta til að stunda vaktavinnu og vinna undir álagi

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Advertisement published10. February 2026
Application deadline27. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Working under pressure
Professions
Job Tags