
Hekla
Hekla sérhæfir sig i sölu og þjónustu á nýjum og notuðum bílum frá Audi, Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Ora. Framleiðendur sem þekktir eru fyrir framúrskarandi gæði og áreiðanleika.
Hjá okkur starfar samstilltur hópur reyndra og þjónustulipra starfsmanna sem hafa það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf. Öflug liðsheild einkennir fyrirtækið sem hefur undanfarin ár verið leiðandi í sölu og viðhaldi á vistvænum bílum.
Við bjóðum upp á alhliða bifreiðaþjónustu og búum yfir einu best búna bifreiðaverkstæði landsins þar sem starfa þrautþjálfaðir bifvélavirkjar.
Hekla er staðsett við Laugaveg 174 í Reykjavík en Hekla Notaðir Bílar eru á Kletthálsi 13 en þar er að finna mikið úrval nýlegra og notaðra bíla.
Þjónusta og sala Heklu snýst um þig.

Við leitum að öflugum innflutningsfulltrúa í teymið
Við leitum að öflugum og nákvæmum aðila til að vinna með okkur hjá Heklu og tengdum félögum í tollamálum.
Hjá fyrirtækinu er dásamlegt samstarfsfólk, góð vinnuaðstaða, frábært mötuneyti og spennandi tímar eru framundan þegar við flytjum í nýtt húsnæði í Þorraholti á vormánuðum.
Vinnutími er 8-16 eða 9-17
Við hvetjum öll kyn til þess að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tollun
- Afstemmingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla af tollskýrslugerð (þrjú ár eða lengur)
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf og hæfni í samskiptum
- Skipulag og geta til að forgangsraða verkefnum
- Þekking á lögum og reglum sem gilda um tollmeðferð vara í innflutningi
- Góð almenn tölvukunnátta, einna helst í Excel og Business Central (BC)
Fríðindi í starfi
Hjá Heklu og systurfélögum starfar samhentur hópur fólks. Við bjóðum upp á gott mötuneyti á Laugarvegi og fáum ávexti senda tvisvar í viku. Íþróttastyrkur er í boði fyrir starfsfólk, ásamt afsláttarkjörum á þeim vörum og þjónustu sem Hekla og systurfélög (Stilling, Dekkjasalan, Carglass) bjóða upp á. Í fyrirtækinu er starfrækt öflugt starfsmannafélag.
Advertisement published26. January 2026
Application deadline12. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Laugavegur 174A, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Tech-savvyConscientiousIndependenceTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi á skrifstofu
Casalísa

Ráðgjafi einstaklinga - Norðurturn
Íslandsbanki

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Bókari - Flügger Iceland
Flügger Litir

Reyndur bókari óskast
Bakland - endurskoðun og ráðgjöf ehf.

Bókari
Landsnet hf.

Bókari
Eignamiðlun

Viðskiptafræðingur - Bókari
&Pálsson

Fulltrúi í tæknideild ökutækja
Samgöngustofa

Sumarstarf - Móttökufulltrúi
Útlendingastofnun

Sérfræðingur í vinnuvernd
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Launaráðgjafi
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið